Hvasst undir Eyjafjöllum og í Öræfum

Vindaspá á miðnætti.
Vindaspá á miðnætti. Kort/Veðurstofa Íslands

Áfram verður hvasst undir Eyjafjöllum og í Öræfum fram á nótt samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Það fer að draga úr vindi og úrkomu undir morgun.

Veður­horf­ur næsta sól­ar­hring­inn gera ann­ars ráð fyr­ir austan- og norðaustanátt og 10-18 metrum á sekúndu og víða rigningu. 

Það dregur úr vindi og úrkomu undir morgun, fyrst sunnan- og austanlands. Austlæg eða breytileg átt 5-13 síðdegis, skýjað með köflum og sums staðar skúrir. Fer aftur að bæta í vind og úrkomu norðan til á landinu seint annað kvöld. Hiti 6 til 15 stig að deginum.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert