Íslendingar láti vita af sér

mbl.is/Hjörtur

Utanríkisráðuneytið hefur ekki fengið neinar tilkynningar um að Íslendingar hafi verið á meðal þeirra sem létust eða hlutu meiðsl í Manchester Arena í borginni Manchester í Bretlandi þar sem sprenging varð í kvöld með þeim afleiðingum að nokkrir létust og aðrir hlutu meiðsl.

Þeir Íslendingar sem voru á tónleikunum eru hvattir til þess að láta ættingja vita af sér. Til að mynda með textaskilaboðum eða í gegnum samfélagsmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert