Skemmtilegast að skapa nýja heima

Eva Maria Daniels kvikmyndaframleiðandi gerði tíu ára plan þegar hún …
Eva Maria Daniels kvikmyndaframleiðandi gerði tíu ára plan þegar hún fluttist frá Íslandi fyrir 22 árum; að búa í Kaupmannahöfn, London, New York og Los Angeles – planið gekk eftir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eva Maria Daniels rekur sitt eigið framleiðslufyrirtæki erlendis, þar sem hún framleiðir og þróar vandaðar óháðar kvikmyndir sem skarta stórstjörnum á borð við Richard Gere, Alexander Skarsgård, Steve Coogan og Julianne Moore.

Eva Maria Daniels hefur meira en nóg að gera og er á ferð og flugi um allan heim í sambandi við vinnuna. Þegar Morgunblaðið hafði samband við hana var hún á leið frá London til Cannes, þar sem hún þurfti að funda og horfa á nýjustu kvikmyndirnar. Hún millilenti þó á Íslandi og leyfði okkur að smella af sér mynd.

„Ég stofnaði fyrirtækið mitt Eva Daniels Productions í Los Angeles árið 2010 og það er enn þar til húsa. Ég gerði tíu ára plan þegar ég flutti frá Íslandi 22 ára um að búa í Kaupmannahöfn, London, New York og Los Angeles,“ segir Eva Maria, sem m.a. lærði kvikmyndaframleiðslu í Kaupmannahöfn.

Fyrsta framleiðsluverkefni Evu Mariu var myndin The Romantics með Josh …
Fyrsta framleiðsluverkefni Evu Mariu var myndin The Romantics með Josh Duhamel og Katie Holmes í aðalhlutverkum.


„Þegar það plan var orðið að raunveruleika ákvað ég árið 2013 að flytja aftur til New York og ætlaði mér bara að vera þar. En á síðasta ári varð ég ástfangin af manni sem býr og starfar í London svo ég flutti þangað aftur fyrr á þessu ári, þar sem við búum loksins saman eftir millilandasamband. Ég var líka farin að sakna Evrópu og fannst mjög heillandi að vera nær Íslandi. Ég get unnið svo mikið í fjarvinnu þannig að það var auðveld ákvörðun að flytja.“

Góð handrit ná athygli

-Hvernig tókst þér að ná til þín stórstjörnum allt frá byrjun?

„Ég hafði unnið í eftirvinnslu á auglýsingum og bíómyndum í um sjö ár áður en ég stofnaði fyrirtækið, þannig að ég var búin að kynnast ýmsu fólki í geiranum og nokkrir urðu góðir vinir mínir. Ein af þeim er Riva Marker sem var einn af kúnnunum mínum hjá Company 3 þar sem ég vann áður. Hún bauð mér fyrsta tækifærið til að vinna við framleiðsluferlið og það var fyrir myndina The Romantics með Katie Holmes, Josh Duhamel og Önnu Paquin í aðalhlutverkum. Við Riva höfum síðan þá framleitt þrjár myndir saman og erum með eina nýja í þróun ásamt fyrirtækinu hennar Rivu, en hún rekur Nine Stories Productions ásamt leikaranum Jake Gyllenhaal. Það er líka þannig að gott handrit stendur alltaf fyrir sínu, þannig að ef þú nærð því rétt, nærðu athygli leikaranna.“

Julianne Moore og Alexander Skarsgård í myndinni What Maisie Knew, …
Julianne Moore og Alexander Skarsgård í myndinni What Maisie Knew, sem er um harða forræðisdeilu.


- Hvernig kvikmyndir viltu helst framleiða?

„Markmiðið hefur alltaf verið að gera myndir sem mögulega hafa samfélagsleg áhrif en eru skemmtun á sama tíma. Myndir sem geta komið jákvæðum áhrifum út í samfélagið, geta jafnvel breytt einhverju og skilið eftir sig mikilvægar samræður. Mér finnst svo magnað að geta tekið á mannúðlegum málefnum í gegnum kvikmyndir og komið skilaboðum þannig út í heim. Ég er alltaf að leita að slíku efni til að þróa.“

Draumur að þróa handrit með leikurum

Eva Maria segist oftast þróa handritin frá grunni; hún skoði bækur, greinar og annað sem getur orðið að fullbúnum handritum, en það taki mjög langan tíma. Hún framleiðir líka kvikmyndir sem hún kemur að inni í miðju ferli.

„Ég var með í kvikmyndinni The Dinner frá því að bókin kom til mín frá öðrum framleiðanda, en Oren Moverman leikstýrði henni og sömuleiðis Time Out of Mind sem ég kom inn í þegar handritið var tilbúið. Oren er algjör snillingur og það er mikill heiður að hafa fengið tækifæri til að gera kvikmyndir með honum með sterkum skilaboðum um málefni heimilislausra og geðveikra. Richard Gere hafði þróað Time Out of Mind í mörg ár sem ástríðuverkefni, en þessi málaflokkur stendur honum mjög nærri hjarta. Hann leikur einmitt aðalhlutverkið í myndinni sem fjallar um heimilislausan mann í New York.

r James Coogan, Laura Lynney, Richard Gere og Rebecca Hall …
r James Coogan, Laura Lynney, Richard Gere og Rebecca Hall í The Dinner, sem fjallar um börn og foreldra.


Kvikmyndin Object of Beauty sem enn er í þróun hefur verið gæluverkefni leikkonunnar Amy Adams. Það verkefni kom líka til mín frá öðrum framleiðanda aðeins seinna í þróunarferlinu. Fyrsti handritshöfundurinn var kominn á skrið áður en ég kom inn í verkefnið þannig að Amy og leikarinn Steve Martin, sem skrifaði skáldsöguna sem myndin byggist á, voru byrjuð að þróa persónurnar,“ segir Eva Maria sem finnst alltaf algjör draumur að fá tækifæri til að þróa handrit með leikurunum.

- Hvað finnst þér skemmtilegast við starfið þitt?

„Að skapa nýja heima og finna skapandi leiðir til að koma samfélagslegum málefnum að í bíómyndum. Sem og þessi stanslausi lærdómur, bæði í gegnum samstarfsfólk og alla þá rannsóknarvinnu sem er í kringum þróunina á hverri mynd fyrir sig. Það er líka meiriháttar að geta tekið upp símann og átt samræður við fólk sem mann gat eingöngu dreymt um að vinna með áður. Svo er það að uppgötva ný talent líka ótrúlega gefandi.“

Flott sýn á myndina

Eva Maria og félagar voru að ljúka tökum í Kanada og Marokkó á kvikmyndinni Hold The Dark, sem fjallar um úlfaskyttu sem eltir uppi barn í óbyggðum Alaska. Jeffrey Wright leikur úlfaskyttuna, en sænski leikarinn Alexander Skarsgård leikur Slone, föður barnsins, sem er eitthvað í nöp við úlfaskyttuna.

Richard Gere lék heimilislausan mann í Time Out of Mind, …
Richard Gere lék heimilislausan mann í Time Out of Mind, en honum er viðfangsefnið hugleikið.


„Myndin er byggð á skáldsögu eftir William Giraldi sem ég heillaðist alveg af. Hún gerist í litlu þorpi í Alaska þar sem börn hafa verið tekin af úlfum og sérfræðingur er fenginn til að rannsaka málið. Hann finnur sig fljótt í togstreitu á milli móðurinnar sem síðan hverfur og eiginmanns hennar sem snýr tilbaka til þorpsins eftir stríðið í Írak.

Leikstjórinn Jeremy Saulnier er einn af þeim leikstjórum sem mig hefur lengi langað að vinna með svo það var mikill fengur í honum við þróun þessa verkefnis. Hann er einstaklega hæfileikaríkur og var með mjög flotta sýn á hvernig myndin ættti að verða. Handritshöfundurinn Macon Blair er æskuvinur hans og einnig mikið talent, svo það var rafmagnað að fylgjast með þeirra samstarfi meðan á skrifunum stóð. Þetta verkefni er mjög ólíkt öllu öðru sem ég hef tekið að mér, eða séð áður, svo allt við það var mjög spennandi.“

- Og er Alexander jafn jarðbundinn og vinalegur og pabbi hans Stellan Skarsgård er þekktur fyrir að vera?

„Já, hann er algjört gull af manni.“

Spennt fyrir nýjum nöfnum

- Er eitthvert draumaverkefni sem þig langar að þróa, draumaleikstjóri eða leikari sem þig langar að vinna með?

„Ég er með nokkrar myndir í þróun með kvikmyndastúdíóinu A24 sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, en stúdíóið framleiddi m.a. Moonlight sem fékk Óskarinn sem besta myndin. Ég tek bara einn dag í einu og reyni að setja orkuna í núið. Það tekur svo langan tíma að koma hverri þróun í framleiðslu, svo maður verður að reyna að njóta ferðarinnar og einblína á lærdóminn á leiðinni. Annars er ekkert eitt ákveðið verkefni sem ég er að stefna að, en það er alltaf markmiðið að gera fleiri kvikmyndir um samfélagsleg málefni sem og að gera mynd á Íslandi.

Varðandi leikstjóra og leikara eru heldur betur mörg nöfn þar í pottinum. Núna þegar ég er komin aftur til Evrópu eftir tíu ára dvöl í Bandaríkjunum er ég mjög spennt að kynnast fleiri nöfnum hérna megin á hnettinum,“ segir Eva Maria Daniels kvikmyndaframleiðandi sem ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert