90 kepptu í kvikmyndakeppni grunnskóla

Nemendur í Grandaskóla voru sigursælir á kvikmyndahátíðinni og fengu m.a. …
Nemendur í Grandaskóla voru sigursælir á kvikmyndahátíðinni og fengu m.a. öll verðlaunin í flokki hreyfimynda yngri nemenda. ljósmynd/Reykjavík

Um 90 myndir bárust í kvikmyndasamkeppni grunnskólanna í Reykjavík, en keppt var í fjórum flokkum yngri og eldri barna; flokki stuttmynda, hreyfimynda, heimildamynda og tónlistarmyndbanda. 

Sigurvegarar í flokki leikinna stuttmynda komu annars vegar úr Árbæjarskóla þar sem eldri nemendur fóru á kostum með Kennaragríni, sem sett var saman í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Heimildarmynd um Árbæjarskóla fékk jafnframt verðlaun. Í yngri flokki leikinna stuttmynda komu verðlaunin í hlut nemenda í Rimaskóla fyrir myndina Lykkju.

Í flokki heimildarmynda eldri nemenda hreppti Birgitta Sól Helgadóttir í Réttarholtsskóla fyrstu verðlaun fyrir mynd sína Hestar. Grandaskóli hreppti öll verðlaunin í flokki hreyfimynda yngri nemenda en Tómas Vilhelm Hafliðason, nemandi í Háteigsskóla, fékk verðlaun fyrir hreyfimynd í flokki eldri nemenda. Fyrstu verðlaun fyrir tónlistarmyndbönd komu annars vegar í hlut yngri nemenda í Dalskóla og hins vegar til eldri nemenda í Laugarlækjarskóla.

Verðlaunamyndir úr hverjum flokki voru sýndar á kvikmyndahátíð í Bíó Paradís í dag fyrir troðfullum sal. Að því loknu fór fram verðlaunaafhending þar sem stoltir leikstjórar, klipparar, sviðsmynda- og búningahönnuðir, teiknarar og leikarar tóku við viðurkenningu.

„Fjöldi mynda vitnar um þá grósku sem er í kvikmyndagerð grunnskólabarna en Mixtúra, margmiðlunarver skóla- og frístundasviðs, er þekkingarmiðja í því starfi og stendur fyrir námskeiðum fyrir kennara og börn. Skapandi kvikmyndagerð er stunduð af miklum móð inni í grunnskólunum og félags- og frístundamiðstöðvum undir leiðsögn starfsfólks með lifandi áhuga á þessu listformi,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Sigurvegarar í gerð leikinna stuttmynda í flokki eldri nemenda komu …
Sigurvegarar í gerð leikinna stuttmynda í flokki eldri nemenda komu úr Rimaskóla og sigurmyndin var hrollvekjan Lykkja. ljósmynd/Reykjavík
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert