Fingralangur fararstjóri í Leifsstöð

Fararstjórinn gat ekki framvísað kvittunum fyrir kaupin og var margsaga …
Fararstjórinn gat ekki framvísað kvittunum fyrir kaupin og var margsaga í útskýringum sínum. mbl.is/Þorsteinn

Árvekni tollvarða í Flugstöð Leifs Eiríkssonar varð til þess að upp komst um þjófnað úr Pure Food Hall-versluninni í Leifsstöð á varningi fyrir að andvirði tæpar 100 þúsund krónur að því er fram kemur í tilkynningu frá tollinum.

Atburðurinn átt sér stað nýverið, en þar var á ferðinni erlendur einstaklingur sem var að koma frá Stokkhólmi. Hann var tekinn til skoðunar í grænu hliði og fannst þá í farangri hans frosið kjöt, tvær flöskur af Flóka viskíi og 10 glös af selaolíu, samtals að andvirði 91.102 krónur.

Ferðalangurinn, sem kvaðst vera leiðsögumaður fyrir ferðahópa, gat ekki framvísað kassakvittun fyrir vörunum þegar eftir því var leitað. Útskýringar hans á vörslu þessa dýra varnings voru margar og margvíslegar og engar tvær voru eins.

Starfsmenn tollgæslunnar höfðu því samband við starfsmann verslunarinnar og kom þá í ljós í sjóðsvélum að engin slík sala hefði farið fram á þeim tíma sem passaði við ferðir leiðsögumannsins.

Ljóst þótti því að vörurnar væru stolnar og var lagt hald á þær og þeim skilað aftur í verslunina, sem hyggst kæra þjófnaðinn til lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert