Hleyptu öndum og lentu í slysi

mbl.is/Þórður

Tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan 14:00 í dag um umferðarslys á mislægum gatnamótum á milli Vesturlandsvegar og Víkurvegar í Reykjavík.

Þar höfðu ökumenn tveggja bifreiða, hvorrar á eftir annarri, stöðvað fyrir hópi anda sem var á leið yfir götuna þegar þriðju bifreiðinni var ekið aftan á aftari bifreiðina. Varð það til þess að aftari bifreiðin kastaðist á þá fremri.

Um minni háttar meiðsl var að ræða og einhverjar skemmdir á bifreiðunum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert