Spreyta sig í Syrpuþoni

Leikupplestur fyrir krakka fer fram um helgina
Leikupplestur fyrir krakka fer fram um helgina

„Við eigum það sameiginlegt með öllum hjá Disney að hafa mikinn metnað til þess að börn og unglingar lesi. Lesi til að afla sér þekkingar, lesi sér til ánægju og eins geti lesið texta upphátt svo aðrir hafi gaman af.“

Þetta segir María Johnson, markaðsstjóri Eddu, og vísar í máli sínu til Syrpuþons sem haldið verður í verslun Eymundsson í Kringlunni næstkomandi laugardag milli klukkan 13 og 16. Er um að ræða upplestraruppákomu fyrir hressa krakka á aldrinum 10 til 14 ára.

„Við hjá Eddu erum mjög spennt fyrir Syrpuþoninu og við fengum Björgvin Franz Gíslason leikara til að vera með á uppákomunni og leiðbeina krökkunum. Þetta verður því vafalaust heilmikil skemmtun fyrir alla sem mæta,“ segir María.

Leikupplestur fyrir krakka verður um helgina
Leikupplestur fyrir krakka verður um helgina mbl.is/Árni Sæberg


Syrpuþonið er hugsað sem tækifæri fyrir krakka til að spreyta sig á leikupplestri með tilþrifum og er fyrirkomulagið einfalt: krakkarnir skrá sig til leiks á www.andresond.is/syrputhon og mæta svo í Eymundsson. Þar leiklesa þau upp úr Syrpu í 1 til 2 mínútur í senn og fá sem fyrr segir aðstoð og ráðleggingar frá Björgvini Franz. Uppákoman verður svo tekin upp á myndband og verða tvö (stelpa og strákur) valin úr hópi þátttakenda til að vera „Syrpuröddin“ og fá þannig tækifæri til að lesa inn á auglýsingar fyrir Syrpur og Andrés Önd.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert