Nafn drengsins sem lést á Eyjafjarðarbraut

mbl.is

Drengurinn sem lést í umferðarslysi á Eyjafjarðarbraut, skammt sunnan við Hrafnagil síðasta mánudag, hét Óliver Einarsson. Hann var ökumaður lít­ils bif­hjóls sem lenti í árekstri við jeppa­bif­reið.

Óliver var 12 ára gamall. Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju næsta miðvikudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert