Lögregla leitar að gráum Land Cruiser

Umferðaróhapp varð á Hvalfjarðarvegi um níuleytið í morgun, þegar bifhjólamaður féll í götuna eftir að ær hljóp í veg fyrir hjól hans. Varð ökumaðurinn fyrir minni háttar meiðslum.

Árekstur varð á Reykjanesbrautinni við Álfabakka um hálfellefuleytið í morgun. Annarri bifreiðinni var ekið af vettvangi eftir áreksturinn, en hinn bílinn þurfti að flytja af vettvangi með dráttarbifreið. Lögregla óskar eftir upplýsingum um bílinn sem var ekið á brott, en um er að ræða gráan Toyota Land Cruiser.

Koma má með ábendingar í gegnum Facebook-síðu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert