Vélhjólaslys á Vestfjörðum

Frá Hólmavík.
Frá Hólmavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út á Vestfirði eftir að tilkynning barst um vélhjólaslys. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum átti slysið sér stað á Drangsnesvegi.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er þyrla hennar lent við Landspítalann í Fossvogi, með slasaðan mann sem sóttur var á flugvöllinn á Hólmavík.

Ekki er vitað hversu alvarlegt slysið er eða þá með hvaða hætti það atvikaðist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert