Níu knapar komnir í landsliðið

Daníel Jónsson hefur tryggt sér sæti í landslíðinu. Á síðasta …
Daníel Jónsson hefur tryggt sér sæti í landslíðinu. Á síðasta heimsmeistaramóti fyrir tveimur árum sat hann Glóðafeyki frá Halakoti sem var efsti hestur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri. Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannsson

Níu knapar eru komnir í íslenska landsliðið í hestaíþróttum og keppa á heimsmeistaramótinu í Oirschot í Hollandi í ágúst. Fimm þeirra tryggðu sér sæti, samkvæmt lykli að vali í landsliði sem landsliðsnefnd LH gefur út hverju sinni, á úrtökumóti landsliðsnefndar og hestamannafélagsins Spretts um helgina. Fjórir heimsmeistarar frá HM2015 verja titil sinn.

Þetta eru: Daníel Jónsson með Þór frá Votumýri – fimmgangur F1, Ásmundur Ernir Snorrason með Spöl frá Njarðvík – fjórgangur V1, Jakob Svavar Sigurðsson með Gloríu frá Skúfslæk – tölt T1, Gústaf Ásgeir Hinriksson með Pistil frá Litlu-Brekku – fjórgangur V1 ungmennaflokk, Finnbogi Bjarnason með Randalín frá Efri-Rauðalæk – tölt T1 ungmennaflokk.

Heimsmeistarar frá 2015 og eiga titil að verja eru: Reynir Örn Pálmason, Guðmundur Björgvinsson, Teitur Árnason og Kristín Lárusdóttir. 

Landsliðið er ekki fullskipað og á enn eftir að velja nokkra knapa til viðbótar. 

Þetta kemur fram á vef Landssambands hestamannafélaga.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert