Lögin um uppreist æru ekki ný

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. mbl.is/Eggert

Þegar Robert Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreiðarsson, fékk uppreist æru í september síðastliðnum var Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, starfandi dómsmálaráðherra. Hann segist ekki hafa átt aðkomu að málinu. Þetta kemur fram í viðtali við hann á RÚV.

Róbert, sem fékk upp­reist æru, hefur fengið lögmannsréttindi sín að nýjuFyr­ir níu árum var hann dæmd­ur í 3 ára fang­elsi fyr­ir kyn­ferðis­brot gegn fjór­um stúlk­um sem voru þá 14 og 15 ára. 

Bjarni segist hafa tekið við niðurstöðu úr ráðuneytinu sem hafði fengið sína hefðbundnu meðferð. Bjarni var starfandi dómsmálaráðherra meðan Ólöf Nordal var í veikindaleyfi.

Bjarni bendir á að lögin sem fjalla um hvernig staðið er að uppreist æru séu ekki ný. Í því samhengi vísar hann til þess að lög á Íslandi gera ótvírætt ráð fyrir því að menn geti aftur fengið uppreist æru þrátt fyrir að hafa hlotið alvarlega dóma ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt. Þar með geta þeir endurheimt ýmis borgaraleg réttindi. 

Fyrr í dag sagðist Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, skilja gremj­una eft­ir að dæmd­ur kyn­ferðis­brotamaður hefði fengið upp­reist æru í gær. Hann bend­ir þó á að hann taki ekki ákvörðun um upp­reist æru, hún sé tek­in ann­ars staðar í stjórn­kerf­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert