34 fíkniefnamál á Secret Solstice

Óeinkennisklæddir lögreglumenn og lögregluhundur gengu um svæðið og leituðu uppi …
Óeinkennisklæddir lögreglumenn og lögregluhundur gengu um svæðið og leituðu uppi fíkniefni. Þarna var hundurinn búinn að hoppa upp á ungan mann og líklegast finna lykt af einhverju ólöglegu. mbl.is/Hanna

Fjórir til fimm óeinkennisklæddir lögreglumenn sinntu fíkniefnaeftirliti á tónlistarhátíðinni Secret Solstice um helgina og höfðu sér til aðstoðar tvo fíkniefnaleitarhunda. Alls komu upp 34 mál á hátíðinni sem tengja má við fíkniefnaeftirlitið, þar af tvær stórar haldlagningar.

Stærstu fíkniefnamálin á hátíðinni voru tvær haldlagningar á fíkniefnum, sem annars vegar var hægt að mæla í tugum gramma og hins vegar í hundruðum gramma, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 

Sveinn Rúnar Ein­ars­son, einn af skipu­leggj­end­um hátíðar­inn­ar, sagði í samtali við mbl.is að samstarf við lögreglu hafi verið mjög gott. 

Viðbúnaður slökkviliðsins á höfuðborg­ar­svæðinu á hátíðinni var meiri en í fyrra. Tveir sjúkra­bíl­ar voru staðsett­ir þar all­an tím­ann, auk þess sem svo­kallaðar stjórn­enda­vakt­ir voru þar með tveim­ur slökkviliðsmönn­um. Þeir héldu til í sér­stöku skipu­lags- og eft­ir­lit­stjaldi ásamt lög­reglu­mönn­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert