Fjöldi umsókna jókst um 10%

Háskólinn í Reykjavík.
Háskólinn í Reykjavík. Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík

Samtals bárust um 2900 umsóknir um nám við Háskólann í Reykjavík vegna næsta hausts sem er um 10% fleiri en í fyrra. Þannig bárust 1610 umsóknir um grunnnám, 939 um meistara- og doktorsnám og 326 umsóknir um undirbúningsnám fyrir háskóla í frumgreinadeild.

„Flestir sækja um grunnnám í tölvunarfræði eða 326 manns. Næstflestir sækja um grunnnám í viðskiptafræði, eða 316 og 337 manns sóttu um að hefja grunnnám í hinum ýmsu greinum verkfræði. Gert er ráð fyrir að um 1400 nemendur hefji nám við HR í haust,“ segir í fréttatilkynningu frá skólanum og ennfremur:

„Mest fjölgun á milli ára er í umsóknum um grunnnám í heilbrigðisverkfræði þar sem 87 umsóknir bárust sem er 74% fjölgun frá árinu 2016. Umsóknum um grunnnám í íþróttafræði fjölgaði um 40% og um meistaranám í Iceland School of Energy um 29%.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert