Öftustu keppendur þurfa að hætta keppni

Liðakeppni í WOW Cyclothon hófst í gær.
Liðakeppni í WOW Cyclothon hófst í gær. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Vegna yfirvofandi storms á Suðausturlandi hefur keppnisstjórn WOW Cyclothon tekið þá ákvörðun að stöðva þá keppendur sem ekki eru líklegir til að vera komnir að Skaftafelli áður en slagviðri skellur á austan Öræfa og á sunnanverðum Austfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá liðsstjórn keppninnar.

Samkvæmt spá Veðurstofu má búast við hvössum vindhviðum, allt að 30 til 35 metrum á sekúndu, en lið sem eru í grennd við Egilsstaði eða ekki komin þangað nú klukkan 18 í dag geta átt von á að vera stöðvuð.

Lið sem verða stöðvuð verða þó talin hafa lokið keppni en lið sem ekki eru stöðvuð af dómurum keppninnar eru talin hafa náð það langt að stormurinn ætti ekki að hafa áhrif á leið þeirra að því er segir í tilkynningunni.

Þegar lið hafa verið stöðvuð eru keppendur beðir um að fá sér sæti í keppnisbílunum og keyra að Skaftafelli en það ætti að koma þeim undan storminum í tæka tíð. Liðum verður leyft að hjóla frá Skaftafelli, hafi þau áhuga á því, þegar mótsstjórn hefur fengið boð frá Veðurstofu um að það sé öruggt. Þá mun liðsstjórn WOW Cyclothon leggja út frá Egilsstöðum í kvöld til að stöðva keppendur, annaðhvort út við vegakant eða með símtali.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert