Ánægja landsmanna með störf forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar hefur minnkað en í nýrri könnun MMR kemur fram að ánægja landsmanna með störf Guðna mælist nú 81,1% og hefur minnkað aðeins frá því hún náði hámarki og mældist 85% í apríl og 83,9% í maí.
Óánægja landsmanna með störf Guðna Th. sem forseta Íslands hefur aftur á móti aukist frá síðustu mælingu. Þar kom í ljós að 5,1% sögðust óánægðir með störf forsetans samanborið við 2,8% í síðustu mælingu.
Fleiri konur en karlar sögðust vera ánægðar með störf forsetans eða 86%, samanborið við 77% karla.
Þá mátti sjá að ánægja með störf Th. Jóhannessonar reyndist mismunandi þegar horft var til stuðnings til stjórnmálaflokka. Mest var ánægjan með störf forsetans hjá stuðningsfólki Samfylkingarinnar, eða 96%.
Stuðningsfólk Framsóknar- (64%) og Sjálfstæðisflokksins (68%) reyndust almennt ekki vera jafn ánægt með störf forsetans og stuðningsfólk annarra flokka.
Til samanburðar frá síðustu mælingum í apríl 2017 reyndust stuðningsfólk Pírata og Vinstri grænna sá flokkur sem ánægðastir voru með störf forsetans, jafnir með 95%, segir í könnun MMR.