Fleiri sigurvegarar komnir í mark

Keppendur í WOW Cyclothon hafa komið í mark einn af …
Keppendur í WOW Cyclothon hafa komið í mark einn af öðrum síðan snemma í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Úrslit réðust nú fyrir skömmu í þessu í bæði A-flokki og í B-flokki kvenna í WOW Cyclothon. Í A-flokki var það liðið Cannondale GÁP Elite sem fór með sigur en liðið kláraði keppni á tímanum 44:34:43.  Í B-flokki kvenna kom Team Artica Finance fyrst í mark á tímanum 43:44:49.

Team Cannondale GÁP Elite hafði töluvert forskot í A-flokki þegar liðið kom í mark en þá voru um 40 kílómetrar á milli þeirra og liðsins Team Cycleworks sem var næst á eftir. Aðeins tvö lið eru nú eftir í B-flokki kvenna, liðin XY Cycling og DeCode XX. Liðið XY Cycling er komið framhjá Eyrarbakka og fer að nálgast lokasprettinn og liðið DeCode XX var að nálgast Selfoss nú fyrir skömmu. 

Team TRI sigraði keppni blandaðra liða í B-flokki á tímanum 37:09:18 eftir æsispennandi lokasprett þar sem liðið kepptist einnig við lið Whale Safari og Team Orkan um þriðja sæti í heildarkeppninni. Í öðru sæti í blönduðum flokki var Team World Class á tímanum 37:22:08 og Team Arkís í því þriðja en þau komu í mark á tímanum 39:00:37.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert