Miklar tafir vegna umferðarslyss

mbl.is/Þórður

Miklar tafir hafa orðið á umferð á Vesturlandsvegi frá höfuðborgarsvæðinu vegna umferðaróhapps á Kjalarnesi þar sem tvær bifreiðar lentu saman.

Ekki voru slys á fólki en gengið hefur seint fyrir lögreglubifreið að komast á staðinn vegna umferðartafanna samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Langar bílaraðir hafa myndast á Vesturlandsvegi en margir eru væntanlega á leiðinni út á land í frí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert