2.000 manns eiga mögulega rétt á endurgreiðslu

Vinnumálastofnun.
Vinnumálastofnun. mbl.is/Ómar Óskarsson

Vinnumálastofnun mun á næstu vikum setja sig í samband við um 1.500-2.000 einstaklinga sem kunna að eiga rétt til endurgreiðslu á atvinnuleysisbótum eftir dóm Hæstaréttar frá því í byrjun þessa mánaðar. Til viðbótar lengist bótatímabil hjá um 1.200 einstaklingum úr 36 mánuðum í 30 mánuði.

Í dómi Hæstaréttar kom fram að Alþingi hafi verið óheimilt að skerða bótarétt þeirra sem þegar höfðu virkjað rétt sinn til atvinnuleysisbóta fyrir 1. janúar 2015 og eiga þeir samkvæmt niðurstöðu dómsins rétt á 36 mánaða bótatímabili. Hins vegar hefur dómurinn ekki áhrif á þá sem fengu fyrst greiddar atvinnuleysisbætur eftir 1. janúar 2015.

Vinnumálastofnun ætlar á næstu vikum að hafa samband við þá sem fullnýttu 30 mánuði af bótatímabili sínu á tímabilinu 1. janúar 2015 og fram til 1. júní 2017 í því skyni að leiðbeina þeim um hugsanlegan rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Með þessu er áætlað að dreifa álagi hjá stofnuninni og einnig til að einstaklingar þurfi ekki að bíða um of eftir því að fá niðurstöðu vegna beiðni sinnar.

Vinnumálastofnun hefur nú þegar hafið vinnu við að hafa samband við alla þá sem fullnýttu bótatímabil sitt frá apríl til júní 2017. Í þessari viku verður haft samband við þá sem fullnýttu bótatímabil sitt á tímabilinu janúar til mars 2017. Í kjölfar þess mun stofnunin hafa samband við þá sem fullnýttu bótatímabil sitt á tímabilinu janúar til apríl 2015 o.s.frv. þar til að stofnunin hefur haft samband við alla þá sem fullnýtt hafa bótatímabil sitt eftir 1. janúar 2015.

Klára á þessa vinnu fyrir lok september og að ljúka greiðslu atvinnuleysisbóta til allra sem eiga rétt á endurgreiðslu fyrir lok nóvember.

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir í samtali við mbl.is að um sé að ræða um 1.500-2.000 einstaklinga sem stofnunin muni hafa samband við. Það sé þó ekki komið í ljós hversu margir eigi rétt til endurgreiðslu, enda sé hvert mál skoðað fyrir sig.

Allar fyrirspurnir vegna dóms Hæstaréttar sem og beiðnir um hugsanlegar greiðslur atvinnuleysisbóta skal beina til Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á greidslustofa@vmst.is. Enn fremur þurfa þeir sem ætla að óska eftir greiðslum atvinnuleysisbóta afturvirkt að fylla út þar til gert eyðublað á vefsíðu Vinnumálastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert