Jón H. B. Snorrason til ríkissaksóknara

Jón H.B. Snorrason.
Jón H.B. Snorrason.

Jón H. B. Snorrason, saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, mun í byrjun ágúst söðla um og hefja störf sem saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara. Þetta staðfestir hann í samtali við mbl.is, en sagt er frá málinu á Vísi.

Jón hefur starfað sem saksóknari frá árinu 1997, fyrst hjá rannsóknarlögreglu ríkisins og síðar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Það var svo í janúar árið 2007 sem hann fór yfir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og hefur hann því verið þar í rúmlega 10 ár.

Jón segir í samtali við mbl.is að með flutninginum sé meðal annars horft til þess að hann komi að fræðslu og símenntun hjá embættinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert