Stal síma af barni í Laugardalnum

AFP

Farsíma var stolið af tólf ára gömlum dreng við Sundlaugaveg um níuleytið í gærkvöldi. Eldri drengur, 16 til 18 ára, bað drenginn um að lána sér símann en hljóp síðan á brott með hann. 

Síðdegis í gær var tilkynnt til lögreglunnar um innbrot í geymsluskúr á baklóð heimilis í Kópavogi. Þar hafði verið stolið veiði- og útilegubúnaði.

Um átta í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot og eignaspjöll á leikskóla í Seljahverfi. Þar hafði verið spenntur upp gluggi og farið inn. Ekki er vitað hvort einhverju var stolið innandyra

Lögreglunni var tilkynnt um þjófnað úr matvöruverslun í Kópavogi um klukkan 20:30 í gær. Ungur maður fór út úr versluninni með fulla körfu af vörum án þess að greiða fyrir. Maðurinn fannst skömmu síðar þar sem hann var kominn inn á heimili með vörurnar. Málið var afgreitt á vettvangi og vörunum skilað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert