Ónýtur eftir harðan árekstur

Bíllinn er óökuhæfur að sinni.
Bíllinn er óökuhæfur að sinni. Ljósmynd/Þröstur Albertsson

Þrír voru fluttir á heilsugæslustöð eftir harða aftanákeyrslu á Snæfellsnesi nú skömmu eftir hádegi. Annar bílanna tveggja er talinn gjörónýtur eftir áreksturinn.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var bíllinn nánast kyrrstæður þegar hin bifreiðin kom aðvífandi en bílstjóri hennar náði ekki að forðast árekstur í tæka tíð.

Bíllinn mun hafa staðnæmst til að hleypa andarungum yfir þjóðveginn. Enginn var alvarlega slasaður eftir því sem mbl.is kemst næst.

Ökumaður bifreiðarinnar náði ekki að afstýra árekstri.
Ökumaður bifreiðarinnar náði ekki að afstýra árekstri. Ljósmynd/Þröstur Albertsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert