Rörasprengja í strætóskýli í Kópavogi

Það sem virðist vera lítil rörasprengja fannst í einu strætóskýlanna …
Það sem virðist vera lítil rörasprengja fannst í einu strætóskýlanna við Hlíðarveg í Kópavogi. Kort/Strætó

Sprengjudeild sérsveitarinnar var kölluð að Hlíðarvegi í Kópavogi um kvöldmatarleytið eftir að tilkynnt var um óþekktan hlut í strætóskýli við götuna. Það var lögregla sem kallaði sérsveitina til, en henni barst ábending frá vegfaranda.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er talið að um litla rörasprengju sé að ræða. Var hún fjarlægð og er nú til rannsóknar.

Uppfært 00.24:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert