Vinningsmiðinn seldur í Garði

Tveir voru með fjóra rétta í Jókernum.
Tveir voru með fjóra rétta í Jókernum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Einn Íslendingur hafði heppnina með sér þegar dregið var út í Víkingalottói í kvöld, en þá var hann með fimm réttar tölur af sex. Fær hann í sinn hlut 1.979.010 krónur að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Miðinn var seldur í Doddagrilli í Garði.

Tveir voru þá með fjórar réttar tölur í röð í Jókernum og fær hvor um sig kr. 100.000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert