Skólpið hætt að flæða í bili

Skólp­dælu­stöðin við Faxa­skjól í Reykja­vík.
Skólp­dælu­stöðin við Faxa­skjól í Reykja­vík. mbl.is/Golli

Búið er að loka neyðarlúgu í skólpdælustöð við Faxaskjól þar sem 750 lítrar af skólpi hafa flætt út í hafið á sekúndu seinustu daga. Er skólpið því hætt að renna út í sjó, en um er að ræða bráðabirgðalausn. Á mánudag verður reynt að koma stöðinni í rétt horf.

Eins og greint var frá í gær er skólp­dælu­stöðin við Faxa­skjól biluð og hefur skólp því flætt út í hafið síðustu tíu daga. Sagði um­hverf­is­stjóri Orku­veitu Reykja­vík­ur í samtali við mbl.is fyrr í dag að um mjög bagalega stöðu væri að ræða.

Frétt mbl.is: 750 lítr­ar af skólpi á sek­úndu

Fulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur fóru að fjörunni við Faxaskjól í dag til að meta stöðuna og hvort það þyrfti að fara í hreinsiaðgerðir. Að sögn Svövu Stein­ars­dótt­ur, heil­brigðis­full­trúa hjá Heil­brigðis­eft­ir­liti Reykja­vík­ur, var ekkert að sjá í fjörunni sem gaf ástæðu til þess að það þyrfti að hreinsa hana.

Þá voru sýni tekin á svæðinu í dag en frumniður­stöður ættu að verða ljós­ar eft­ir sól­ar­hring.

Dælustöðin við Faxaskjól flytur skólp frá Norðlingaholti, hluta Árbæjar, Breiðholti, Fossvogi, Garðabæ og Kópavogi í skólphreinsistöðina í Ánanaustum. 

Mikill leki sjávar meðfram lokunni

Samkvæmt frétt á vef Veitna í dag kom í ljós að mikill leki sjávar var meðfram lokunni inn í stöðina. Undanfarið hafi starfsmenn Veitna unnið hörðum höndum að viðgerð en tafir hafi orðið vegna aðstæðna.

Bilunin var tilkynnt til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þegar hún kom upp. Niðurstöður sýnatöku frá því í júní sýndu að gildin féllu innan þeirra marka sem heimil eru fyrir baðstaði í náttúrunni. 

Skólphreinistöðin í Ánanaustum var sú fyrsta sinnar tegundar á höfuðborgarsvæðinu en hún var tekin í notkun árið 1998 og hreinsaði hún skólp frá 57% íbúa Reykjavíkur. Fram að því rann allt skólp óhreinsað í sjóinn. Árið 2002 var svo hreinsistöðinni í Klettagörðum bætt við og 2005 var sett upp dælustöð fyrir skólp í Gufunesi sem tengdi fráveitu í Grafarvogi og Grafarholti við hreinsistöðina í Klettagörðum. Með þessum framkvæmdum voru 99,5% íbúa höfuðborgarsvæðisins tengd fráveitu með hreinsistöð að því er fram kemur í frétt Veitna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert