Umferðaróhapp varð milli Hellu og Hvolsvallar klukkan rúmlega sex í kvöld. Tvær bifreiðar skullu saman en engin slys urðu á fólki. Lögreglan er enn að störfum á vettvangi og unnið er að því að opna veginn að nýju. Það gæti tekið allt að klukkutíma, að sögn lögreglu en á meðan er umferð hleypt í hollum um veginn.