Brotist inn í bifreiðir og bústað

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan handtók einn einstakling á ellefta tímanum í dag sem er grunaður um innbrot í geymslur og bifreiðir við Hagamel í Reykjavík. Þjófar virðast einnig hafa verið á ferð í Mosfellssveit en tilkynnt var um innbrot í sumarhús við Selmerkurveg á þriðja tímanum í dag. Málin eru bæði í rannsókn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.  

Engin meiðsl urðu á fólki þegar bifreið var ekið á ljósastaur við Vífilsstaðaveg um klukkan hálftvö í dag, segir einnig í dagbók lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert