Handtekinn í brúðkaupi

Vera mannsins í veislunni endaði með lögreglufylgd í fangaklefa.
Vera mannsins í veislunni endaði með lögreglufylgd í fangaklefa. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í brúðkaupsveislu í nótt.

Rúmlega tvö í nótt barst lögreglunni tilkynning um mjög ölvaðan mann í brúðkaupsveislu. Hann hafði brotið vask og verið til leiðinda, eins og það er orðað í tilkynningu frá lögreglu. Lögreglumenn komu á vettvang og var maðurinn handtekinn og svo vistaður í fangaklefa í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert