Harður árekstur varð nú á tólfta tímanum á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar þar sem bíll virðist hafa ekið á strætisvagn.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er sjúkrabíll nú á leið á vettvang, en ekki er talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki.
Töluvert brak er á gatnamótunum, þar sem bíllinn stendur kyrr á þeim miðjum, en ekki hafa þó orðið tafir á umferð vegna árekstursins.