Hlýjast á Vesturlandi í dag

mbl.is/Ófeigur

Hlýjast verður á Vesturlandi en svalast á norðausturhorni landsins í dag og verður hitinn á bilinu 8 til 23 stig. Léttskýjað vestantil en þokuloft við Faxaflóa í nótt og á þokunni að létta þegar líður á morguninn. 

Norðaustan 5-13 m/s en 10-20 m/s SA-til í dag og verður hvassast við Öræfajökul. Skýjað og víða dálítil væta austantil. Tiltölulega hvasst verður við Öræfajökul og gætu vindhviður náð 25-30 m/s. Ökumönnum sem hyggjast ferðast á þessu svæði með eftirvagna er bent á að hafa það í huga. Þetta kemur fram í veðurspá Veðurstofu Íslands. 

Sjá nánar veðurvef mbl.is 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert