Vinnu við vegskála lýkur á næstunni

Vinna við vegskálann hefur gengið vel og er á áætlun.
Vinna við vegskálann hefur gengið vel og er á áætlun. Ljósmynd/Vaðlaheiðargöng

Vinna við vegskála Vaðlaheiðarganga Fnjóskadalsmegin hefur gengið vel og er á áætlun.

Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, segir framkvæmdir hafa gengið vel og ráðgerir að lokið verði við skálann á næstu mánuðum.

„Vinna við vegskálann hófst fljótlega eftir gegnumslag og hefur gengið mjög vel og er á áætlun. Við gerum ráð fyrir að vinna við skálann klárist í september en alls er hann um 188 metrar að lengd.“ Auk framkvæmda við vegskálann er vegavinna á svæðinu í fullum gangi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert