Göngufólkið er fundið

Göngufólkið er fundið.
Göngufólkið er fundið. mbl.is/Ómar

Fólkið sem varð viðskila við gönguhóp sinn í Lónsöræfum er fundið. Fólkið hafði náð að komast af sjálfsdáðum í skálann Egilssel og amar ekkert að því. Björgunarsveitir áttu erfitt með að komast í samband við skálann því bilun er í fjarskiptabúnaðinum þar. Um 50 manns hafa komið að leitinni í nótt við krefjandi aðstæður. 

Þegar fólkið fannst var í undirbúningi að boða út enn fleira björgunarsveitarfólk og einnig hafði verið óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert