Stór flutningabíll út af veginum

mbl.is/Þórður

Stór flutningsbifreið fór úr af veginum um Vatnaleið á Snæfellsnesi norðan megin í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vesturlandi.

Fyrir vikið má búast við miklum töfum og jafnvel tímabundinni lokum fyrir umferð næstu klukkustundina á meðan unnið er að því að koma bifreiðinni upp á veginn.

Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvað olli óhappinu eða hvort slys urðu á fólki.

Uppfært 17:42: Búið er að opna fyrir umferð á nýjan leik um Vatnaleið á Snæfellsnesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert