Íslendingar heilir á húfi

mbl.is/Hjörtur

Engar tilkynningar hafa borist utanríkisráðuneytinu um að Íslendingar séu á meðal þeirra sem létust eða urðu fyrir meiðslum vegna hryðjuverksins í Barcelona á Spáni þar sem sendiferðabifreið var ekið á hóp gangandi vegfarenda á Römblunni með þeim afleiðingum að 13 létu lífið og að minnsta kosti 50 urðu fyrir meiðslum en gatan er vinsæl meðal ferðamanna og heimamanna.

Þetta staðfestir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins. Hún segir að ráðuneytið hafi til þessa í mesta lagi fengið upplýsingar um Íslendinga sem komist ekki leiðar sinnar vegna lokana spænsku lögreglunnar á svæðinu í kjölfar hryðjuverksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert