Eldur í íbúðarhúsi á Hnífsdal

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Hnífsdal á Vestfjörðum um áttaleytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði er búið að slökkva eldinn, en mikill reykur myndaðist. Einn var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar.

Eldsupptök eru enn ókunn, en málið er í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert