H&M skiltið fjarlægt í dag

H&M skiltið verður fjarlægt af Lækjartorgi í dag.
H&M skiltið verður fjarlægt af Lækjartorgi í dag. mbl.is/RAX

Það voru mistök hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að heimila H&M auglýsingu á Lækjargötu. Í tilkynningu sem Reykjavíkurborg sendi frá sér nú síðdegis, segir að málið hefði þurft frekari umfjöllun þar sem um álitaefni sé að ræða.

Biðjast borgaryfirvöld velvirðingar á þessum mistökum, en segja hvorki við birtingaraðila né H&M að sakast í málinu.

Segir borgin að skiltið verði fjarlægt af Lækjartorgi í dag. „Reykjavíkurborg hefur átt mjög gott samstarf við H&M eftir að mistökin voru ljós og vinnur H&M nú að því að finna nýja staðsetningu fyrir auglýsinguna,“ segir í tilkynningunni.

Unnið sé að endurskoðun á ferlum og bættu verklagi í samræmi við reglur um afnot af borgarlandi vegna skilta og útstillinga, m.a. með innleiðingu á öflugu leyfiskerfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert