Ríkisstjórnin með 27,2% fylgi

Ríkisstjórn Íslands.
Ríkisstjórn Íslands. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 27,2% í nýrri könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokkanna. Í júlí var ríkisstjórnin með 34,1% fylgi.

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með mest fylgi íslenskra flokka eða 24,5% og Vinstri græn þar á eftir með 20,5%.  

Könnunin var gerð dagana 15. til 18. ágúst 2017 og alls svörðu 955 einstaklingar, 18 ára og eldri, könnuninni.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur dalað um tæp 5% frá síðustu mælingu MMR sem lauk 21. júlí síðastliðinn en þá var flokkurinn með 29,3% fylgi. Fylgi VG hefur breyst lítið frá því síðasta könnun var gerð en þá mældist flokkurinn með 20,4%.

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,1% og mældist 9,6% í síðustu könnun.
Fylgi Flokk fólksins mældist nú 6,7% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,0% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 3,6% og mældist 2,4% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,6% samanlagt.

 Hér er hægt að skoða niðurstöðurnar nánar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert