Strætó ekur á hjólreiðamann

Strætisvagn ók á hjólreiðamann á gatnamótum Miklubrautar og Háleitisbrautar laust fyrir hálfníu í kvöld.

Lögregla og sjúkrabíll voru komin fljótt á vettvang, en strætisvagninum var ekið í austurátt og átti slysið sér stað við aðreinina af Háaleitisbraut.

Að sögn slökkviliðsins er um alvarlegt slys að ræða og flutti sjúkrabíll hjólreiðamanninn á Landspítalann í Fossvogi til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert