Lítill fiskur veldur heilabrotum

Fiskurinn sem veldur heilabrotum.
Fiskurinn sem veldur heilabrotum.

Lítill torkennilegur fiskur hefur valdið sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar nokkrum heilabrotum síðustu vikur.

Þessi smágerði uppsjávarfiskur veiddist í makrílleiðangri rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar sunnarlega á Reykjaneshrygg fyrir um mánuði og hefur ekki tekist að greina hvaða tegund er um að ræða.

Alls veiddist hálft annað kíló af fiskinum, sem var að meðaltali um sex sentimetrar að lengd, og fékkst fiskurinn aðeins í einu togi. Að sögn Jónbjörns Pálssonar, fiskifræðings á Hafrannsóknastofnun, velta menn því meðal annars því fyrir sér hvort þarna hafi ný tegund verið á ferð eða hugsanlega seiði einhverrar fisktegundar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert