Íbúar undirbúa hópmálsókn

„Þetta snýst um skerðingu lífsgæða,“ segir Elva Sif Gretarsdóttir, sem …
„Þetta snýst um skerðingu lífsgæða,“ segir Elva Sif Gretarsdóttir, sem býr í námunda við kísilver United Silicon. mbl.is/RAX

Samtök andstæðinga stóriðju í Helguvík ætla að hefja fjársöfnun á Karolinafund til að standa undir kostnaði við fyrirhugaða hópmálsókn fyrir hönd íbúa Reykjanesbæjar gegn United Silicon sem rekur kísilver í Helguvík.

Mögulega verður einnig farið í mál við fleiri aðila vegna málsins. Þetta kom fram á fjölmennum íbúafundi í Stapanum í Reykjanesbæ í gærkvöldi, þar sem kísilverinu og mengun sem frá því stafar var harðlega mótmælt.

„Viljum við að Bítlabærinn okkar fallegi endi sem kísilbærinn í sögubókum komandi kynslóða?“ spurði Einar Már Atlason, formaður samtakanna, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. „Við hættum ekki fyrr en við jörðum þessa verksmiðju.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert