Sextán ára undir stýri í ísbíltúr

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærdag afskipti af sextán ára pilti sem hafði skotist á bifreið föður síns út í söluturn í Keflavík til að kaupa sér ís.

Pilturinn var að sjálfsögðu ökuréttindalaus vegna ungs aldurs, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Forráðamönnum hans var tilkynnt um atvikið og tilkynning var einnig send til barnaverndarnefndar.

Fimm ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur á Suðurnesjum undanfarna daga og skráningarnúmer hafa verið fjarlægð af sex bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar. Þá var einn ökumaður staðinn að því að aka á nagladekkjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert