Tafir á umferð vegna áreksturs

Tafir urðu í Ártúnsbrekku vegna árekstursins.
Tafir urðu í Ártúnsbrekku vegna árekstursins. mbl.is/Hanna

Talsverðar tafir eru á umferð vestur Ártúnsbrekku vegna áreksturs en engin slys urðu á fólki, samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Líkt og lögreglan benti á í síðustu viku er umferðin með þyngsta móti á morgnana þessa dagana enda allir skólar að hefjast. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert