Aktiva ehf., sem bauð upp á svokölluð jafningjalán, hefur tilkynnt að hætta þurfi frekari fjárfestingum á lánatorgi fyrirtækisins.
Er þetta gert vegna íþyngjandi krafna frá Fjármálaeftirlitinu um sérstaka leyfisveitingu um greiðsluþjónustu, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þetta efni í Morgunblaðinu í dag.
Með jafningjalánum er átt við að lántakendur og lánveitendur séu tengdir saman í gegnum svokallað lánatorg án milligöngu banka.