Ráðist á unga konu

mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Ung kona tilkynnti um líkamsárás í Hafnarfirði á fimmta tímanum í nótt en að hennar sögn hafði sá sem réðst á hana síma hennar og lykla á brott með sér. Lögreglan hefur handtekið ungan mann í annarlegu ástandi í tengslum við málið og er hann vistaður í fangageymslu lögreglunnar. Unnið er að rannsókn málsins og liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um það á þessari stundu.

Par í annarlegu ástandi sem ógnaði þremur 14 ára drengjum með eggvopnum í Breiðholtinu um níuleytið í gærkvöldi var handtekið í sama hverfi. Drengirnir náðu að hlaupa frá vettvangi og tilkynna lögreglu en parið hafði reynt að ná af þeim farsímunum. Parið er vistað í fangageymslu lögreglunnar fyrir rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert