Loka fyrir heita vatnið í Fossvogi á morgun

Svæðið sem lokunin nær til á morgun.
Svæðið sem lokunin nær til á morgun. Kort/Veitur

Á morgun verður lokað fyrir heita vatnið í Fossvogi og Ásgarði í Reykjavík og Lundi í Kópavogi. Er það vegna vinnu Veitna við að skipta út aðalæð hitaveitunnar í Fossvogi. Lokunin mun standa yfir frá 06:00 til 20:00.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Hægt verður að fylgjast með framgangi framkvæmdanna á heimasíðu Veitna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert