„Með skítugustu brögðum sem ég hef séð“

Magnús Garðarsson.
Magnús Garðarsson.

Magnús Ólafur Garðarsson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri United Silicon, segir óvægna fjölmiðlaumfjöllun í hans garð, síðustu tvo daga, bæði hafa skaðað fjölskyldu hans og 24 hluthafa aðra í félaginu á Íslandi, í Danmörku og Hollandi, sem hafa fjárfest sparifé sínu í það „sem átti að vera flottasta kísilver í heimi“. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér rétt í þessu. Þá segir hann Arion banka vera að reyna að koma honum „í eins lélega stöðu og mögulegt er“ svo bankinn geti eignast félagið án þess að borga fyrir það.

Í gær var greint frá því að stjórn United Silicon hefði, í sam­ráði við lög­mann fé­lags­ins og aðstoðarmann í greiðslu­stöðvun, sent kæru til embætt­is héraðssak­sókn­ara um mögu­lega refsi­verða hátt­semi af hálfu Magnúsar. Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is nær hin meinta refsi­verða hátt­semi til upp­hæða sem hlaupa á hundruðum millj­óna.

Í samtali við mbl.is fyrr í dag hafnaði Magnús því alfarið að hafa dregið að sér fé úr félaginu, og ítrekar hann það í tilkynningunni. Hann segir fréttir af málinu rangar og tilhæfulausar og hafi ekkert með sannleikann að gera. „Þetta er ekkert annað en mjög skítugur slagur um eignarhald að félaginu United Silicon, sem ég stofnaði árið 2014 og á stóran hlut í.“

Magnús bendir á að Arion banki hafi farið með stjórn í félaginu síðan í vor, þar sem erfiðlega hafi gengið að reka verksmiðjuna af tæknilegum ástæðum, auk þess sem fé hafi vantað til lagfæra ýmislegt og koma rekstrinum í lag. Hann segist hafa samþykkt að fara úr stjórn félagsins til að greiða veginn, en bankinn hafi ekki látið staðar numiö þar.

„Það er augljóst að Arion banki er að reyna að koma mér í eins lélega stöðu og mögulegt er, svo hann geti eignast allt félagið án þess að borga fyrir það. Þetta eru með skítugustu brögðum sem ég hef séð beitt í viðskiptaheiminum.“

Magnús segist nú bíða eftir að fá að heyra hver þau meintu brot eru sem hann á að hafa framið, svo hann geti varið sig og dregið sannleikann fram í dagsljósið. Hann segist tilbúinn að vinna með stjórn félagsins og héraðssaksóknara og greina frá sinni hlið málsins.

Hér fyrir neðan má lesa tilkynninguna í heild:

„Undirritaður mótmælir alfarið ásökunum sem fram hafa komið í fjölmiðlum á Íslandi í dag og í gær, sem eru rangar og tilhæfulausar og þessar fréttir hafa ekkert með sannleikann að gera. Þetta er ekkert annað en mjög skítugur slagur um eignarhald að félaginu United Silicon, sem ég stofnaði árið 2014 og á stóran hlut í.

Arion Banki hefur farið með stjórn á félaginu síðan í vor, þar sem erfiðlega gekk að reka verksmiðjuna af tæknilegum ástæðum, auk þess sem það vantaði fé til þess að lagfæra hana og koma rekstrinum í lag. Arion Banki og hluthafar í hópi með bankanum komu að mestu leyti með það fé, en kröfðust þess í staðinn að taka völdin í félaginu. Það gerðu þeir með því að setja inn sína eigin stjórnarmenn. Ég samþykkti það og fór út úr stjórn félagsins til að greiða veginn til að laga það sem laga þurfti. Bankinn stoppaði hins vegar ekki þar og hefur hann í síðustu viku reynt að taka hlutabréf okkar einstaklinga sem hafa fjárfest í félaginu. Nú í þessarri viku hef ég verið kærður fyrir eitthvað meint brot, sem ég get ekki ímyndað mér hvað er, enda hef ég ekki heyrt neitt um málið fyrr enn í gærkvöldi og þá í gegnum fjölmiðla.

Það er augljóst að Arion Banki er að reyna að koma mér í eins lélega stöðu og mögulegt er, svo hann geti eignast allt félagið án þess að borga fyrir það. Þetta eru með skítugustu brögðum sem ég hef séð beitt í viðskiptaheiminum.

Ég bíð eftir að heyra hver þessi meintu brot eru, svo ég geti varið mig og sannleikurinn komi fram. Ég er tilbúinn að vinna með stjórn félagsins og/eða héraðssaksóknara til að lýsa málinu frá öllu hliðum.

Þessi óvægna umfjöllun í minn garð hefur því miður skaðað fjölskyldu mína á Íslandi og 24 aðra einstaklinga á Íslandi, í Danmörku og Hollandi, sem eru hluthafar í félaginu og hafa fjárfest sparifé sínu verksmiðjuna, sem átti að vera flottasta kísilver í heimi, og vinna í góðu samstarfi með umhverfi sitt, þannig að Ísland geti verið stolt af að taka þátt í grænu sólarbyltingu heimsins, sem þarfnast mikinn kísil til að framleiða allar þær sólarrafhlöður sem er þörf á í heiminum.


Með kveðju

Magnús Ólafur Garðarsson“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert