Mjólkursamsalan safnar fyrir Kusu á Landspítalann

Söfnunarátaki ýtt úr vör: Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Ari …
Söfnunarátaki ýtt úr vör: Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Ari Edwald forstjóri Mjólkursamsölunnar, ásamt Ölmu Möller framkvæmdastjóra aðgerðarsviðs Landspítala og Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur framkvæmdastjóra flæðisviðs Landspítala. Ljósmynd/Aðsend

Söfnunarátakinu Mjólkin gefur styrk hefur verið ýtt úr vör fjórða árið í röð. Með átakinu styður MS við kaup á nýjum tækjabúnaði fyrir Landspítalann en átakið safnar árlega um 15 milljónum króna. Ef að líkum lækur verður samanlögð fjárhæð átaksins því kom upp í 60 milljónir króna í ár. 

Eins og undanfarin ár mun D-vítamínbætt léttmjólk skipta tímabundið um útlit og munu 30 krónur af hverri seldri fernu renna til tækjakaupa Landspítalans. 

„Það er mjög viðeigandi og skemmtilegt að mjólkin leggi Landspítala lið með þessum hætti. Starfsfólk spítalans þarf að hafa yfir að ráða góðum og nútímavæddum tækjabúnaði til að ná sem bestum árangri í meðhöndlun skjólstæðinga,“ sagði Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, við þetta tækifæri.

Um er að ræða tvö tæki. Annars vegar Cusa, en það tæki kallar fagfólk kallar gjarnan „Kusuna“ og notar við skurðaðgerðir á líffærum með kviðsjártækni. Hins vegar verður safnað fyrir barkaspeglunartæki sem auðveldar barkaþræðingu hjá mikið slösuðum og veikum sjúklingum á bráðamóttöku.

Ari Edwald og Páll Matthíasson
Ari Edwald og Páll Matthíasson Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert