Ráðherra kynnir frumvarp um uppreist æru

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra er bjartsýn á að þingheimur taki …
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra er bjartsýn á að þingheimur taki vel í frumvarpið um breytingu á uppreist æru. mbl.is/Hanna

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hyggst á morgun kynna frumvarp um breytingu á lögum um uppreist æru fyrir formönnum þingflokkanna. Þetta staðfestir Sigríður í samtali við mbl.is.

„Við erum búin að vera að vinna að þessari endurskoðun í ráðuneytinu og ég hef kynnt  mína sýn á þetta mál sem felst í því að afnema alfarið heimildina til að veita uppreist æru, en um leið skýra með hvaða hætti menn öðlist aftur borgararéttindi sem í raun er þetta óflekkað mannorð,“ segir Sigríður.

Fram hefur komið að afnám uppreistar æru hafi áhrif á fjölda laga og segir Sigríður þeirri vinnu við að gera nauðsynlegar breytingar á þeim ekki vera lokið.

„Ég mun þó leggja fram frumvarp sem er mikilvægt skref í þessa átt.“

Spurð hvort að hún sé bjartsýn á að þingið taki vel í frumvarpið segir hún: „Ég hef ekki heyrt  annað en það sé samstaða um að þessu þurfi að breyta.“

Hún hafi lýst á fundum fastanefnda þingsins og á opinberum vettvangi sinni sýn á hvernig heppilegast sé að gera það. „Ég hef ekki heyrt neinar aðrar hugmyndir, þannig að ég á ekki von á öðru en að það geti náðst samstaða um þetta skref sem ég tel rétt að taka.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert