Bíll valt neðst í Kömbunum um eittleytið í dag. Fór bíllinn út af veginum og valt við það og fóru lögregla og sjúkrabíll á vettvang.
Engin slys urðu þó á fólki að sögn lögreglunnar á Selfossi, en bílinn þurfti hins vegar að draga á brott með dráttarbíl.