Umferðartafir á Sæbraut

Umferðartafir eru á Sæbraut en frá því klukkan 21.00 hefur verið unnið að kvikmyndatöku þar. Tafir verða á umferð  fram eftir nóttu.

Unnið verður að kvikmyndatöku á kaflanum frá Klettagörðum að Höfða til vesturs. Lögreglan verður á staðnum og stýrir umferð. Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitssemi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert